Vel staðsett og vel útbúin íbúð með tveimur svefnherbergjum í Torrevieja, þar sem allt er í göngufæri. Aðeins 12 mín. gangur er að miðbæ Torrevieja þar sem fjöldi verslana og iðandi mannlíf, um 20 mín gangur á næstu strönd og Aquopolis vatnsrennibrautagarðurinn er í um 15 mín. göngufæri. Consum í næstu götu 3 mín rölt og mjög stór markaður er á föstudögum í ca. 18 mín. göngufæri. Ljósleiðari og chromecast eru í íbúð.
Við sækjum þig á flugvöllin ef þú óskar eftir því.
- Húsið rúmar 4 fullorðna
- 2 svefnherbergi
- Þvottavél og uppþvottavél
- 1 baðherbergi með sturtu
- Sólbaðsaðstaða í garði og við sundlaug
- Sameiginleg læst hverfissundlaug
- Lidl, Mercadona, keila & Habaneras mollið er í 10 mín göngufjarlægð.
- 20 mín rölt niður á strönd
- Rólegt hverfi og stutt í alla þjónustu
- Hér geturðu sparað þér bílaleigubílinn
Heildarlýsing
Íbúðin er á neðri hæð í raðhúsi á hornlóð. Hún er 60 m2 með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, og hjónarúm í báðum herbergjum, 160 cm breiðu í öðru og 150 cm í hinu, góðir fataskápar í báðum herbergjum. Loftkæling A/C er í báðum herbergjum og stofu. Rúmgóð stofa með sófasetti og 55" sjónvarpi sem og chromecasti. Í baðherbergi er baðkar með sturtu. Í eldhúsi er þvottavél, uppþvottavél, ísskápur m/frystihólfi, spamhelluborði, vegghengdum ofni, örbylgjuofni og borðbúnaður er fyrir sex manns. Framan við íbúðina er glerjaður sólskáli með borði og fjórum stólum. Garður snýr í suður með borði og fjórum stólum sem og tveimur sólbekkjum. Sundlaug er sameiginleg í læstum garði auk barnasundlaugar. Allur húsbúnaður er til staðar sem og handklæði og tvö strandarhandklæði. Stutt í alla þjónustu. Helstu göngufjarlægðir: miðbær Torrevieja 12 mín, næsta strönd ca. 20 mín, Aquopolis vatnsrennibrautagarður ca. 15 mín, föstudagsmarkaður ca. 18 mín, Lidl, Mercadona, Ozone keila , Carrifour og Habaneras, góð verslunarmiðstöð, er í ca. 10 mín. göngufæri en þar finnur þú öll helstu merkin eins og Zara, HM, C&A, Intersport o.fl. Frá flugvellinum í Alicante er um 45 mín. akstur.
ATH: Rauðir dagar í dagatali geta verið skipti dagar leitið nánari upplýsinga um lausa daga spanarfri(at)spanarfri.is.
Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft. Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans. Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði þrif eru 80 eu fyrir tímabilið og greiðist við komu.
Smella á myndina til að stækka og smella aftur til að loka