Mjög fallegt og vel staðsett miðraðhús sem snýr beint á móti sameiginlegum sundlaugagarði í strandhverfinu Cabo Roig. Húsið er á 2 hæðum ásamt einkaþaksvölum sem er innangengt upp á frá íbúðinni. Mjög fjölskylduvænn og öruggur staður þar sem enginn kemst inn í þennan íbúðagarð nema hafa lykil að garðinum.
Staðsetningin er mjög góð þar sem ekki tekur nema nokkrar 10-15 mínútur að rölta niður á Cabo Roig ströndina þar sem finn má veitingastað - strandbari - Jetski og hjólabátaleigu ofl.(sjá myndband af ströndinni hér) Einnig aðeins nokkrar mínútur að rölta niður á Cabo Roig göngugötuna þar sem er úrval veitingastaða, kaffihús, matvöruverslanir, barir olf.
Íbúðahlutinn í húsinu er á 2 hæðum en fyrir framan húsið er lítill einkagarður með flísalagðri verönd og sérgarður með útihúsgögnum. Á jarðhæð hússins er rúmgóð stofa með svefnsófa og flatskjá ásamt borstofu, sér eldhús með öllum áhöldum og tækjum og lítið baðherbergi. Út frá eldhúsinu er unnt að ganga út á baklóð. Frá borðstofunni er unnt að ganga upp á efri hæðina en þar eru tvö svefnherbergi með 1 baðherbergi. Annað herbergjanna er hjónaherbergi með tvöföldu rúmi og í hinu herberginu eru 2 stök rúm og þar væri unnt að koma fyrir aukarúmi fyrir unglinn. Allt að 6 manns með börnum geta gist í húsinu en einnig er unnt að leigja ungbarnarúm í gegnum Spánarfrí.
Ekki tekur nema rétt um 3-4 min að ganga frá húsinu út á göngugötuna í Cabo Roig en þar má finna úrval veitingastaða, bari, kaffihús, apótek, matvöruverslanir ofl. (Sjá myndband af göngugötunni hér) Allt umhverfið er mjög fallegt og er þetta hverfi mjög vinsælt á meðal ferðamanna þar sem allt er til alls á svæðinu og mjög stutt rölt í alla þjónustu, verslun ofl. Ekki þörf á að vera á bíl . Um 10 min akstur í miðbæ Torrevieja (sjá myndband hér) og um 5 min akstur í risa verslunarmiðstöðina Zenia Boulevard - sjá myndband hér
INTERNET Í HÚSINU FYLGIR
Forsíða |
Átt þú eign | Um okkur | Flug | Bílaleigur | Ferðir frá flugvelli | Golf | Markaðir | Verslanir | Kort |
Póstlisti