Vista Azul 2 , Calle Ortosa 41C .. Cabo Roig..
Falleg íbúð á besta stað í Alicante. CA 12 min gangur á ströndina, 8 mínutur á veitingastaði , og ca 12 mín í Zenia Bouleward mallið. Húsið er á þremur hæðum. Sólverönd á öllum . á þakinu er sólverönd, úr tveimur herbergjum á hæðinni er gengið út á stórar svalir. Og neðst er flott stór verönd með borði og stólum auk sól bekkja. Dásamleg sameiginleg sundlaug er inní miðju húsahverfinu og eru fáir sem nota hana því margir eru með einka laugar.
3 svefnherbergi: 2 svefnherbergi uppi , hvort fyrir tvo og 1 niðri með rúmi fyrir einn.
Komið er inní stofu þar sem sjónvarp með fjölvarpi (þ.a.m RÚV) Internet.
Eldhus opið með barstólum og borð og 4 stólar . Eldhús rúmgott . Baðherbergi með sturtu.
Eitt svefnherbergi með skápum. rúm 190x90. Uppi eru 2 herbergi með aðgangi að sömu svölunum og gott baðherbergi með sturtu , baðkari og beday. Skápar í öllum herbergjum.
Yndislegt hús með öllum þægindum. Loftkæling og ofnar í hverju herbergi.